Ferill 779. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1754 — 779. mál.
Frumvarp til laga
um vandaða starfshætti í vísindum.
(Eftir 2. umræðu, 7. júní.)
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Almennar kröfur.
Fyrirtæki og stofnanir bera ábyrgð á að efla vitund um vandaða starfshætti og framfylgja þeim í rannsóknum á sínum vegum. Stofnunum og fyrirtækjum þar sem rannsóknir fara fram er skylt að fræða starfsfólk sitt og nemendur um vandaða starfshætti í vísindum.
4. gr.
Eftirlit fyrirtækja og stofnana.
Tilkynna ber nefnd um vandaða starfshætti í vísindum skv. 5. gr. um öll slík mál og meðferð þeirra.
Heimilt er enn fremur að leita leiðsagnar nefndarinnar eða óska eftir áliti hennar, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 7. gr.
Fyrirtæki og stofnanir skulu aðstoða nefndina við að upplýsa mál sem þar eru tekin fyrir, þ.m.t. með því að leggja fyrir hana nauðsynleg gögn.
5. gr.
Skipun nefndar um vandaða starfshætti í vísindum.
Í nefndinni skulu sitja sjö aðalmenn og sjö varamenn. Ráðherra skipar formann án tilnefningar.
Ráðherra ákveður nefndarmönnum þóknun og sér nefndinni fyrir skrifstofuaðstöðu og starfsfólki.
Nefndin getur kallað sérfræðinga sér til ráðgjafar í einstökum málum.
6. gr.
Hlutverk nefndar um vandaða starfshætti í vísindum.
Nefndin skal vera stjórnvöldum og öðrum sem til hennar leita til ráðgjafar og veita umsagnir og ráð um stefnumótun, þ.m.t. lagasetningu. Hún skal beita sér fyrir umræðum um málefnið innan lands og fylgjast með og taka þátt í alþjóðastarfi á sínu sviði.
Nefndin skráir viðurkennd siðferðisviðmið í rannsóknum og skilgreiningar á brotum gegn þeim. Viðmiðin skulu birt á vef nefndarinnar að fenginni umsögn vísinda- og tækniráðs og staðfestingu ráðherra.
Nefndin veitir álit um hvort brotið hafi verið gegn þessum siðferðisviðmiðum. Álitsgerðum nefndarinnar skv. 7. gr., og úrlausnum skv. 8. gr. er ekki hægt að skjóta til æðra stjórnvalds.
7. gr.
Álitsgerðir nefndar um vandaða starfshætti í vísindum.
Mál geta komið til kasta nefndarinnar með eftirtöldum hætti:
1. Stofnanir eða fyrirtæki geta óskað eftir áliti nefndarinnar í málum þar sem gildar ástæður eru fyrir því að ekki verði leyst úr þeim á vettvangi.
2. Sá sem ekki unir niðurstöðu stofnunar eða fyrirtækis og hefur hagsmuna að gæta getur óskað eftir áliti nefndarinnar.
3. Lögbundnar siðanefndir sem fjalla um rannsóknir geta vísað málum til nefndarinnar.
4. Nefndin getur að eigin frumkvæði eða samkvæmt ábendingu hafið athugun á því hvort brotið hafi verið gegn viðurkenndum siðferðisviðmiðum í rannsóknum, þ.m.t. utan stofnana eða fyrirtækja.
Álitsgerðir nefndarinnar geta varðað eftirfarandi atriði:
a. hvort vísinda- eða fræðimaður eða annar ábyrgðarmaður rannsóknar hafi brotið gegn viðurkenndum siðferðisviðmiðum,
b. hvort um sé að ræða kerfislægan vanda hjá stofnun, fyrirtæki eða viðkomandi rannsóknasamfélagi,
c. hvort leiðrétta beri eða afturkalla niðurstöður rannsókna,
d. hvort fram hafi komið við athugun nefndarinnar annars konar annmarkar í rannsókna- eða vísindastarfi sem brjóta gegn vönduðum starfsháttum þótt þeir falli ekki undir viðurkennd siðferðisviðmið.
8. gr.
Frávísun og heimvísun.
Nefndin getur beint því til stofnunar eða fyrirtækis að taka mál til úrlausnar.
9. gr.
Málsmeðferð.
Nefndin setur sér málsmeðferðarreglur sem ráðherra staðfestir og eru birtar á vef nefndarinnar. Í reglunum skal mæla nánar fyrir um form álitsgerða, hverjum sé tilkynnt um niðurstöður og eftirfylgni nefndarinnar með álitsgerðum.
10. gr.
Ársskýrsla.
11. gr.
Gildistaka.